27. október 2018
Tuttugu börnum og fjölskyldum þeirra, samtals rúmlega eitt hundrað manns, var afhentur ferðastyrkur úr sjóðnum Vildarbörn Icelandair í dag. Alls hafa 645 fjölskyldur notið stuðnings frá sjóðnum frá stofnun hans fyrir 15 árum. Fram kemur í fréttatilkynningu að úthlutunin í dag hafi verið sú 31. í röðinni.
Starfsemi Vildarbarna Icelandair byggist á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, eiginkonu Sigurðar Helgasonar, sem lengi var forstjóri Flugleiða og stjórnarformaður Icelandair Group.
Markmið sjóðsins er að gefa langveikum börnum, foreldrum þeirra og systkinum tækifæri til þess að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á. Líkt og við úthlutun styrkjanna undanfarið afhentu Sambíóin börnunum bíómiða.
„Sjóðurinn Vildarbörn er fjármagnaður með beinu fjárframlagi Icelandair, frjálsum framlögum félaga í Saga Club Icelandair sem geta gefið af Vildarpunktum sínum, með söfnun myntar um borð í flugvélum Icelandair, sölu á Vildarenglinum um borð í vélum Icelandair og söfnunarbaukum á Keflavíkurflugvelli og söluskrifstofum Icelandair. Einnig koma til frjáls framlög og viðburðir,“ kemur fram í tilkynningu Icelandair.